Markmið okkar er að gleðja þig með hollum og bragðgóðum brauðum sem eru án viðbætts sykurs, fitu og gers.
Við sækjum innblástur í gamlar hefðir í brauðbakstri og kökugerð, þar sem vandað handverk og úrvals hráefni eru ávallt í fyrirrúmi.
Um okkur
Sagan okkar
Sagan okkar hófst haustið 1997 þegar við opnuðum fyrsta bakaríið okkar við Miðvang 41 í Hafnarfirði. Tveimur árum síðar fluttum við í verslunarmiðstöðina Fjörð. Árið 2007 seldum við bakaríið en tókum aftur við rekstrinum ári síðar og höfum verið þar síðan.
Frá upphafi höfum við lagt áherslu á vandað handverk, úrvals hráefni og fjölbreytt vöruúrval. Við byggjum á gömlum hefðum í brauðbakstri og kökugerð en leggjum jafnframt metnað í nýjungar, gæði og bragð.
Í gegnum árin höfum við fengið að vera hluti af ótal stórum og smáum stundum í lífi viðskiptavina okkar. Frá hversdagslegum kaffibolla og nýbökuðu brauði til skírna, ferminga, brúðkaupa og annarra tímamóta. Það gleður okkur sérstaklega að sjá sömu fjölskyldurnar koma aftur til okkar, kynslóð eftir kynslóð.
Kökulist hefur alla tíð átt sterk tengsl við Hafnarfjörð og erum við óendanlega þakklát fyrir þá tryggð sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt okkur í gegnum árin. Það er þessi hlýja og traust sem hvetur okkur áfram, að halda í góðar hefðir, þróast með tímanum og bjóða ávallt upp á eitthvað gott.
Um bakarann
Jón Rúnar Arilíusson
Jón Rúnar Arilíusson hefur áratuga reynslu af bakaraiðn og brennandi ástríðu fyrir faginu. Metnaður fyrir vönduðu handverki, úrvals hráefnum og stöðugri þróun hefur ávallt verið leiðarljós hans.
1987-1990
Lærir konditor í Danmörku og útskrifast með rós.
1994-1998
Keppir með Kokkalandsliðinu á HM og Ólympíuleikum.
1996
Verður Íslandsmeistari í kökuskreytingum.
1997
Stofnar Kökumeistarann ehf. við Miðvang 41.
2001
Dæmir á heimsmeistaramóti ungra konditora í Portúgal.
2003
Kökumeistarinn hlýtur titilinn Bakarí ársins.
2004
Fer fyrir íslenska liðinu í Evrópukeppni í brauðgerð.
2008
Stofnar Kökulist ehf. og tekur aftur við rekstri í Firði.
2009
Kökulist vinnur keppnina Brauð ársins úr íslensku byggi.
2011
Útskrifast sem bakarameistari frá Hótel- og matvælaskólanum.
Til gamans
Kreisti krumluna á Mike Tyson!
Í viðskiptaferð í nóvember 2010 rakst Jón á góðið sitt, Mike Tyson, á flugvellinum í New York.
„Ég rak botninn í einhvern fyrir aftan mig og þá var það Mike Tyson sem var vesenast eitthvað með lítið barn. Eg er sennilega eini sem hef náð að skúbba honum til með botninum.“
Jón spurði hvort hann mætti taka mynd af honum.
„Hann sagði nei og tók af mér myndavélina og rétti tollverðinum og sagðist heldur vilja að hann tæki mynd af okkur þremur.“
„Mike Tyson er númer eitt. Fyrir mig að fá að taka í krumluna á honum var eins og fyrir litinn strák að koma í nammibúð.“